Friday, August 29, 2003
Vikulok
Nú er vikan að klárast, alla vega virku dagarnir. Þetta er reyndar undarlegt orð, virkir dagar þar sem helgarnar eru orðnar ansi virkar hjá mörgum. Framundan eru haustdagar og skammdegi en einhverra hluta vegna hef ég ekki kuldatilfinningu gagnvart vetri. Þó sagt sé að fyrirboðarnir boði harðan vetur þá er mín almenna tilfinning gagnvart vetri ekki tengd kulda. Hvítur snjór yfir öllu finnst mér hlýlegt að sjá, jörðin umvafin snæ. Það er eitthvað við það sem tengir það ekki kulda. Að sofa í snjóhúsi er það besta sem maður gerir, að vera vel klæddur í brjáluðu veðri finnst mér frábært. Það er eitthvað við tengingarnar hjá mér sem er öfugsnúið. Blátt finnst mér hlýtt, rautt kuldalegt, snæviþakin jörð hlýleg, þveröfugt við aðra. Þetta nær þó ekki svo langt að mér finnist súrt sætt og sætt súrt eða naglar mjúkir en sumir hlutir eins og t.d. litir eru öðruvísi í tilfinningakerfinu í mér en viðtekin venja er.
Ég get þó huggað mig við það að sem betur fer eru ekki allir eins, hvað þá eins og ég. Það væri ekki gaman að hitta sjálfan sig á hverju horni. Tilveran yrði fremur einsleit og leiðinleg ef svo væri. Ég væri hvorki gáfaðri né heimskari en aðrir og sömu málefnin rædd út í gegn.
Berglind er með blogg, smellið á hana eða linkinn hér til hliðar, hún er alltaf skemmtileg.

Thursday, August 28, 2003
The Day after
Þá er því lokið. Vaknaði kl. 5 í morgun, borðaði og dreif mig af stað, þ.e. Bjarni dreif mig af stað þar sem hann sótti mig.
Við erum þokkalega ánægðir með hvernig til tókst að spila og vonum að aðrir séu það líka, alla vega skemmtum við okkur ágætlega.
Ég held að það hljóti að vera erfitt að vera fréttaþulur eða dagskrárgerðarmaður. Þau eru með tæki í eyrunum þar sem glymur stanslaust hvað tæknimennirnir eru að gera og segja. Meðan þau lesa upp fréttir þá heyrist í tækinu stöðugt: klippa á vél 3, það eru 10 sekúndur í auglýsingar, hvar er næsti viðmælandi o.s.frv. Þetta hlýtur að vera ruglandi. Þau hafa alla vega mína samúð og sérstaklega þessa dagana þar sem verið er að reka þau í hópum. Þvílíkt vanþakklæti.
Í morgun þegar við spiluðum, rákumst við á ýmis fyrirbrigði, menn og skepnur. Flóran á fjölmiðlunum er mikil og margt í gangi. Það er ekki bara tíma- og tæknistress heldur poppa upp ýmsar þekktar og óþekktar persónur. Þetta er eflaust skemmtileg vinna, jafnvel þó þau þurfi að vakna svona snemma og láta reka sig í ofanálag.

Wednesday, August 27, 2003
Í bítið
Nú er það komið á hreint. Ég þarf að vakna snemma og vera mættur kl. 6 að morgni til að fara að spila á píanó. Þetta er nú ekki í lagi. Að reyna að hreyfa puttana svona snemma og hvað þá að reyna að hugsa og muna það sem maður á að spila. Er svo einhver sem hlustar svona snemma dags? Það kemur í ljós. Alla vega verð ég ásamt fleirum í Ísland í bítið að morgni fimmtudags, 28. ágúst og fremjum þar hljóðgjörninga. Þetta verður í raun bara sýnishorn þar sem allt klabbið verður flutt á þriðjudaginn í Salnum í Kópavogi. Það verður þó á skikkanlegri tíma.

Tuesday, August 26, 2003
Bakaður
Nú ligg ég í því. Bjarni vinur minn söngvari benti mér á samhverfuorð á baggalutur.is þar sem er langur listi af slíkum orðum. Að vísu eru þetta einnig setningar en margar hverjar mjög skemmtilegar. Mín lengstu orð eru þar flest en þó hef ég einhverju við að bæta. Góð dæmi af listanum eru orð eins og: súlulús, rassapassar, riddararaddir, rangalaröralagnar, raksápupáskar, tómatamót, ruddagaddur, Alaskaþaksala, árbítstíbrá, grafarafarg, grasasnadansasarg, grobbborg, ræmumær og rútutúr. En setningarnar eru enn skemmtilegri:
sá hana drekka lakk, er Dana hás?
Vá! Má merk skatan nota tonnatakskrem á máv?
sívís nam Enter fret nemans í VÍS
Rut fann illa kallinn aftur
Rut lögregla, alger göltur
Rut Panama smámsaman aptur
rafagnalagna langalangafar
rak Saga dama Madagaskar?
móta atóm
mun sá Arabi ná ló í nál? Nei, en lán í óláni, bara ásnum
Ladan úr Brúnadal
lána rakara nál
Líbanir aka Toyota Karina bíl
löggur banna bruggöl
marflöt mas-samtöl fram
Halla María, sú fallega gella Fúsa í Ramallah
Halla Rut etur Allah
inn úr rassi moki kúki komissar Rúnni
Galapagos og apalag
á rekís lá padda Páls í Kerá
Alli Ragnar angar illa
amma margra argra mamma
Anar Rútur á Rut úr Rana?
Andrés sér DNA
Anna má ýta Tý á Manna
Anna, bara sú hása, sá hús arabanna
Arafat sarð rök skörð Rastafara
arka til litakra
Atli Már á milta
alger regla
Ég held ég sé mát. En ef einhver fleiri samhverfuorð eða setningar finnast þá er um að gera að láta vita.
Ég er enn í hláturskasti yfir þessu.
Svo er alltaf spurning í hvaða ástandi menn eru þegar þeir semja svona setningar, he he.

Tónleikar
Nú er lag. Á þriðjudaginn 2. september verða tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem ég kem til með að spila. Bjarni Þór Sigurðsson mun halda upp á afmælið sitt þennan dag með veglegum tónleikum og er 8 manna band sem spilar. Þetta eru allt þrautþjálfaðir hljóðfæraleikarar og er dagskráin byggð upp á þekktum dægurlögum undanfarinna áratuga. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá sem ég hvet alla til að koma og sjá og hlusta. Mögulega verður sveitin í Ísland í bítið, annað hvort á fimmtudag eða föstudag (27. eða 28. ágúst) og verður það vonandi góður forsmekkur af því sem koma skal svo nú er bara að bíða og fylgjast með.
Jæja, þá er búið að auglýsa það.

Monday, August 25, 2003
Herramenn
Bara svona í lok vinnudags verð ég að bæta við krækju á mjög herramannslega síðu. Herramenn.net er síða sem haldið er úti af miklum herramönnum og er margt forvitnilegt að sjá þar. Smelltu á herramenn hér til hægri á síðunni.

Orð á borð
Það er til ansi skemmtileg krossgáta hér í bæ sem er lunkin við orðaleiki. Hún gengur að mestu út á útúr snúning á orðum og stafarugli, ekki hefðbundnar skýringar og lausnir. Hún birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins og eru þar oft mjög skemmtilegar skýringar á orðum og orðasamböndum. Gott hugmyndaflug þar á bæ.

Enn og aftur og áfram bak
Það stækkar safnið. Til eru tvö orð saman sem eru eins í báðar áttir, eða ættum við að segja gott báðu megin.
Spurðu Ara bara er dæmi um slíka samsetningu. Einnig ef þú vilt lána nál.
Annað er nokkuð sem gæti bæst í safnið en það eru orð sem hægt er að lesa aftur á bak en skipta algjörlega um merkingu.
Að vera málkunnur hefur nýja merkingu aftur á bak en þú verður að lesa það á eigin spýtur. Fleiri slík dæmi eiga eftir að bætast við.

Athugasemdir
Neðan við hvern póst er lína sem er annars litar en þessi texti, Comments. Þar getur þú lesandi góður smellt á og skrifað athugasemdir ef þú hefur einhverjar. Öllum frjálst að skrifa, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt, bara að það sé uppbyggjandi, he he.

Tónlist
Úr því ég er á annað borð að semja tónlist, þá er jafn gott að koma því á framfæri. Hér á hægri hönd eru krækjur á þær síður þar sem ég hef vistað mína tónlist. Að auki hef ég bætt Þór Breiðfjörð stórvini mínum í krækjuhópinn. Hann er starfandi í Bretlandi og milli þess sem hann er í söngleikjauppfærslum, þá er hann að semja tónlist og fleira. Hann tók þátt í uppfærslum á söngleikjum hér heima áður en hann fór erlendis, s.s. Hárið, Jesus Christ Superstar o.fl. Einnig hefur hann sett upp síðu með efni fyrir þá sem eiga erfitt með svefn. Skoðið þetta. Bara svo þið vitið það þá er Þór forvitnilegur.

Á
Kunningi minn, sem svo glettilega vill til að heitir Bjarni eins og fleiri, benti mér á að orðið Á, hafi ansi margar merkingar. Þekkt er setningin: bóndinn á á á á á á.
Þ.e. bóndinn á bænum Á, á kind á bænum Á. Þetta mætti jafnvel útfæra: bóndinn á á á á á á á á . Þ.e. bóndinn á bænum Á, á kind ofan á kind á bænum Á. En ýmsar merkingar geta fylgt þessu stutta eins atkvæðis orði. Þetta getur verið stór lækur, kind, að eiga, benda á, vera ofan á, á morgun, vera á förum eða ef þú meiðir þig, þá er sagt á. Gaman væri að finna fleiri merkingar og er ég viss um að það eru mun fleiri en þessar.
Einnig benti hann mér á að orðið jæja getur breytt verulega um merkingu eftir hljómfalli. Prófaðu!

Aftur á bak og áfram
Það bætist hægt og bítandi í aftur-á-bak-og-áfram orðasafnið. Það er auðvitað til mýgrútur af stuttum symmetrískum orðum eins og aha, ala, amma, arra, alla, unnu, abba, anna o.fl. en skemmtilegast er að finna lengri orð. Nú síðast bættust tvö við sem kannski er hægt að telja sem nýyrði en það er þó hægt að finna rök fyrir þeim. Segjum sem svo að ég eigi bátaskýli og þar í loftinu sé slá sem ég geymi árarnar á. Þar með hef ég árará í bátaskýlinu. Annað skemmtilegt orð er togaragot. Ef einhver skipasmíðastöðin framleiðir togara á færibandi mætti segja að þeir stundi togaragot eða jafnvel þegar skipinu er fleytt til sjávar mætti kalla vígsluna sama orði. Ég efast um að togarar muni nokkurn tíma geta farið að fjölga sér sjálfir, en aldrei að vita.
Ah, það er kominn nýr dagur og ný vika. Hver dagur og hver vika ber eitthvað nýtt í skauti sér svo nú er bara að bíða og vona.

Friday, August 22, 2003
Írak
Orð eru mér tíðum hugleikin og einn er sá leikur sem hugnast mér en það er að finna lengsta orð sem hægt er að lesa eða skrifa aftur á bak eða áfram þannig að það sé eins, symmetrískt. Vissuð þið að orðið írakabakarí er skrifað eins í báðar áttir? Lengra orð hef ég ekki fundið ennþá en auglýsi hér með eftir slíkum yrðum.

Kvennaríki
Ég bý einn með þremur konum. Bryndísi, konunni minin, Þóru Mjöll frumburði okkar og Heiði Ósk yngri dóttur.
Áður en dæturnar fæddust var ég ávallt í öðru sæti á heimilinu. Náði því að vera húsbóndi á mínu heimili og lét líta út fyrir að ég réði einhverju. En með tímanum hef ég hrapað í goggunarröðinni og nú er svo komið að ég er í fjórða sæti. Það gengur ávallt erfiðar og erfiðar að láta líta út fyrir að ég ráði einhverju á mínu heimili lengur. Konan mín er í þriðja sæti og harðstjórarnir í tveimur efstu sætunum tróna þar með bros á vör. Þetta er þó bærilegra núna því við vorum með tvo ketti á sínum tíma og það meira að segja læður. Þar með var veldi mitt hrunið og ég bjó við ofríki 5 kvenna. Um tíma vorum við meira að segja með kvenkyns leigjanda en þá sagði ég hingað og ekki lengra og var henni snarað annað. Læðurnar læðupokuðust aftur fyrir mitt bak og héldu svallveislur á mínu heimili þegar ég var fjarverandi. Eitthvað hefur vistin þó verið dauf hjá annarri þar sem hún hvarf nokkrum vikum eftir að henni var hleypt út fyrir hússins dyr en nokkru síðar var ekið yfir hina. Ég er ekki að mæla með þessari aðferð en fyrir vikið hef ég þokast ofar í goggunarstiganum. Ég veit að sumir karlmenn sjá það í hillingum að búa með þremur konum og vil ég ekki kvarta en mögulega hafa þeir einhverjar ranghugmyndir um slíka samvist. Ég reyni þó að sinna þörfum þeirra eftir bestu getu og tel ég að menn þurfi að vera í þokkalegu formi til að standa undir því.

Í tengslum
Það er kominn tími til að tengja. Uppáhalds bloggarinn minn, Bjarni (sá sem kom mér á bragðið), er svo vinsamlegur að hlekkja mig á síðunni sinni og vil ég launa honum með hlekk á móti. Ýtið á Bjarni blogg eða á hlekkinn hér til hægri á síðunni og sjáið Bjarna í hnotskurn. Heill þér lærimeistari.

Thursday, August 21, 2003
Ær og kýr
Íslenskan er undarlegt tungumál. Ritmálið getur með einum bókstaf umturnað tungumálinu. Ef kona fer aftast í langa biðröð, á þá að skrifa það sem löng röð eða laungröð?
Ef ég nú sturlast á einhverju og segi: ég verð ær. Hvers vegna verður maður ær en ekki á? Það þarf að skilgreina nánar muninn á eintölu og fleirtölu, ein á, margar ær.
Skýringin gæti þó legið í því þegar smalarnir urðu pirraðir á einverunni í selunum og þeir réðust á ærnar, þeir ærðust. Skyldi upphafleg meining í þessu hafa falið í sér aðra merkingu? Förum ekki út í þá sálma hér en ég bara spyr.
Ég er farinn að skilja af hverju útlendingum þykir erfitt að læra málið.

Rusl og póstur
þessa dagana dynur á netnotendum rusl og drasl í gegnum tölvupóstinn. Ýmist eru þetta vírusar, keðjubréf eða annar ósómi sem sómakærum borgurum er lítt um. Vírusarnir hafa þó þann eiginleika að þeir sjá um að fjölga sér sjálfir að miklu leyti en t.d. keðjubréf eru alfarið upp á almúgann komin að því leyti að sé bréfið slitið, er það dauðadæmt.
Ég hef megnan ímugust á þessum svokölluðu keðjubréfum þar sem þau enda oftast nær á hótunum um að ef þú ekki framsendir bréfið þá munu ýmsar ógæfur dynja á þér. Einnig eru sníkjubréfin hvimleið en spurning hvort þau mætti ekki setja á dýralistann hjá honum Bjarna.

Jæja
Að venju gekk ég í vinnuna þennan morguninn og leit til himins eins og ávallt, hvort hann myndi nokkuð rigna á mig núna þar sem ég reyni að vera sumarklæddur. Þetta leit ekki vel út þar sem yfir mér hékk rigningin að mér fannst. En það var glæta í austri (roðinn í austri) og þangað einmitt gekk ég. Ekki rigndi á mig þennan morguninn en það blés örlítið.
Er þetta ekki dæmigert fyrir Íslending, að tala um veðrið og það strax í byrjun dags?

Wednesday, August 20, 2003
Aha
Svona er þetta þá. Nú er ég kominn á vefinn og get blaðrað eins og ég vil. Netið er minn hlustandi og aldrei að vita hverjir detta inn til að lesa. Mér líður eins og ég sé að æpa inn í stóra tóma tunnu en mögulega við hinn endann gæti einhver kíkt inn og heyrði þá óminn. Ef einhver álpast til að kíkja inn þá endilega gefa tóninn til baka, þá er þetta ekki bara endurómur af sjálfum mér.